is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > ML Lagadeild / Department of Law >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19278

Titill: 
  • Haldlagning og leit í rafrænum gögnum
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Meginviðfangsefni þessarar ritgerðar er að draga fram hvaða reglur gilda um haldlagningu og leit í rafrænum gögnum. Umfjöllunin snýr meðal annars að því að sýna fram á hvort þörf sé á skýrari reglum um þessar tilteknu þvingunarráðstafanir í ljósi ört vaxandi tækniþróunar síðustu áratuga. Til að svara þessum álitaefnum er fjallað um hvernig framkvæmd á þvingunarráðstöfunum er háttað hér á landi, ásamt því að litið er til framkvæmdar í Noregi. Í upphafi ritgerðar er fjallað um haldlagningu og leit í sögulegu samhengi. Fjallað er ítarlega um efnisskilyrði ákvæðanna sem gilda samkvæmt lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008 og hvernig þeim er beitt í framkvæmd. Lagðir eru til grundvallar dómar þar sem lagt er hald á mikið magn af rafrænum gögnum við húsleitir og fjallað um álitaefni tengdum þeim. Í niðurstöðu ritgerðarinnar er sýnt fram á að þörf sé á skýrari reglum um haldlagningu og leit í rafrænum gögnum. Álitaefni tengd spegilafritun á rafrænum gögnum hafa ekki verið lögð fyrir íslenska dómstóla, en telja verður að þörf sé að setja lög eða reglur um slík úrræði. Sama á við um rafræn gögn sem haldlögð eru umfram heimildir samkvæmt dómsúrskurði. Veigamikil rök eru fyrir því að setja sameiginlegar reglur um haldlagningu og leit á rafrænum gögnum og símahlustun og sambærileg úrræði. Því er ályktun höfundar að þörf sé á lagabreytingu hvað varðar þessar tilteknu þvingunarráðstafanir lögreglu og annarra stjórnvalda með tilliti til friðhelgi einkalífs, meðalhófs og réttaröryggis almennings.

  • Útdráttur er á ensku

    Search and seizure of electronic data
    The primary purpose of this thesis is to study laws and procedures that apply to the search and seizure of electronic data and discuss whether new or clearer rules about such coercive measures are needed in light of rapid technological advancements in recent years. To address these issues, it is discussed how coercive measures are implemented in Iceland and then compared to Norway. The concept of the seizure and search of electronic data is discussed within a historical context. Relevant provisions of the Criminal Procedure Act, no. 88/2008 are examined with emphasis on their practical significance. Fundamental court proceedings concerning the collection of evidence during a lawful search are studied. In this thesis it is argued that the legal basis for the search and seizure of electronic data needs to be reviewed given recent judicial rulings. Furthermore, despite the fact that cases related to mirror copying of electronic data have not yet been submitted to the Icelandic courts, the thesis findings confirm the need for the passing of laws covering such matters. In addition, the thesis concludes that special legal provisions should be created for cases where electronic data has been seized in excess, according to a court order. The thesis general conclusion is that a general review of the legal framework for coercive actions related to the search and seizure of electronic data is required. To reach this goal, general legislation regarding the search and seizure of electronic data, telephone surveillance and comparable actions should be enacted. This would, in turn, safeguard privacy, respect the rule of proportionality and ensure legal security.

Samþykkt: 
  • 3.7.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/19278


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MLritgerð_RagnhildurGylfadóttir.pdf673.12 kBLokaður til...30.10.2050HeildartextiPDF