is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/192

Titill: 
  • Endurhæfing og eftirfylgd : reynsla, ánægja og lífsgæði skjólstæðinga
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Á síðustu árum hefur orðið mikil breyting á uppbyggingu endurhæfingarþjónustu á
    vesturlöndum. Þjónustan fer nú fram í auknum mæli á göngu- og dagdeildum en sú þjónusta er
    talin mun ódýrari og sveigjanlegri en legudeildarþjónusta. Þessi þróun er hafin á Íslandi meðal
    annars með aukinni eftirfylgdarþjónustu. Fáar rannsóknir hafa verið birtar um hver reynsla
    skjólstæðinganna er af þjónustunni og hvort endurhæfingin og eftirfylgdin bætir lífsgæði þeirra.
    Markmið með þessari rannsókn var tvíþætt. Í fyrstlagi að kanna reynslu skjólstæðinga af
    endurhæfingu inni á stofnun og eftirfylgd að hennlokinni. Í öðru lagi að fá mynd af lífsgæðum
    skjólstæðinga eftir að nokkur tími er liðinn frá því að endurhæfingu inni á stofnun lauk.
    Þátttakendur í rannsókninni voru valdir með hentugleikaúrtaki úr hópi skjólstæðinga
    taugasviðs Reykjalundar. Þátttakendur voru 32, 21 kona og 11 karlar. Notað var megindlegt
    rannsóknarsnið og upplýsinga aflað með spurningalista, sem rannsakendur sömdu sjálfir.
    Rannsakendur fóru heim til þátttakenda með spurningalistana og voru þátttakendum innan
    handar á meðan þeir svöruðu. Við úrvinnslu tölulegra gagna var tölfræðiforritið Statistical
    Package for the Social Sciences (SPSS) notað. Til að lýsa niðurstöðum var notuð lýsandi
    tölfræði.
    Í niðurstöðum rannsóknarinnar kemur fram mikil ánægja með endurhæfingar- og
    eftirfylgdarþjónustuna á taugasviði Reykjalundar. Árangur af endurhæfingunni var mikill
    og gekk þátttakendum almennt nokkuð vel að viðhalda þeim árangri eftir að heim var
    komið. Niðurstöðurnar gefa einnig til kynna að þjónustan hafi verið skjólstæðingsmiðuð
    og mikið tillit tekið til óska þátttakenda. Þátttakendur benda á nokkra þætti sem huga
    iii
    mætti betur að í endurhæfingunni. Til dæmis komu fram óskir um að fjölskyldu og
    aðstandendum væri meira sinnt og er það í samræmi við það sem komið hefur í ljós í
    erlendum rannsóknum.
    Lykilorð: Endurhæfing, eftirfylgd, lífsgæði, taugasvið, teymisvinna.

Samþykkt: 
  • 1.1.2006
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/192


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
endurhaefing.pdf4.56 MBOpinnEndurhæfing og eftirfylgd - heildPDFSkoða/Opna