Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19331
Líkamleg hreyfing er mikilvægur þáttur til að stuðla að heilbrigðum lífsstíl. Börn sem tileinka sér hreyfingu í æsku eru líklegri til að hreyfa sig einnig síðar meir. Því er mikilvægt að öll börn finni hreyfingu við sitt hæfi. Til að börn finni hjá sér löngun til að hreyfa sig þurfa æfingar að vekja áhuga þeirra, vera fjölbreyttar og skemmtilegar. Í þessari handbók eru raktar helstu ástæður brottfalls barna og unglinga úr skipulögðu íþróttastarfi. Leitast er við að finna leiðir til að fyrirbyggja brottfall með réttri þjálffræði. Æfingahandbókin er ætluð þjálfurum 10 til 12 ára barna. Einföldum grunnæfingum og leikjum til að þróa helstu grunnþætti þjálfunar viðkomandi aldurshópa eru gerð góð skil t.d. þolæfingum, hraða- og viðbragðsæfingum, jafnvægisæfingum, kraftþjálfun og teygjuæfingum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Heilbrigur lÌfsStÌll til framtÌar.pdf | 2.18 MB | Lokaður til...31.05.2134 |
Athugsemd: Vil að lokaverkefnið mitt sé alltaf lokað!