is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > BSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþrótta-, iðn- og tæknifræði -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19360

Titill: 
  • Meiðsli í úrvalsdeild karla í handknattleik keppnistímabilið 2013-2014
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Handknattleikur hefur iðulega verið nefnd þjóðaríþrótt Íslendinga en þrátt fyrir það hafa afar fáar rannsóknir verið gerðar sem tengjast meiðslum í handknattleik á Íslandi. Nýlega var þó gerð rannsókn á meiðslum í úrvalsdeild kvenna og skoðaði ég hvort einhver tengsl væru á milli hennar og rannsóknar minnar. Markmið þessarar rannsóknar var einmitt að skoða staðsetningu og tíðni meiðsla í úrvalsdeild karla í handknattleik út frá nokkrum sjónarhornum. Athugað var hvort meiðslin kæmu upp á svipuðum stöðum og hjá leikmönnum kvennadeildarinnar ásamt því að skoða hvort rannsóknin gæti varpað einhverju ljósi á nýjar leiðir til að fyrirbyggja meiðsli eða sporna við þeim á einhvern hátt. Þátttakendur voru 108 leikmenn frá átta liðum í efstu deild karla. Notaður var spurningalisti sem farið var með á æfingar liðanna þar sem leikmenn fengu val um að svara honum. Svarhlutfallið var 13,5 leikmenn á lið sem er mjög gott. Algengustu meiðslin voru á ökkla 22,3%, þar næst komu meiðsli sem flokkuð voru sem „annað“ 20,6% og að lokum komu meiðsli á öxl 14,9%. Hlutfall meiðslanna af völdum slysa var 57% og 43% voru vegna álags. Flest meiðsli komu upp í liði FH og algengasti tími fjarveru vegna meiðsla var ein til tvær vikur (47,4%).

Samþykkt: 
  • 25.8.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/19360


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Handknattleikur_Bs c.pdf882.08 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna