is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1937

Titill: 
  • Talar þú ensku? : rannsókn á þætti talaðs máls í enskukennslu
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð skoðar einn af merkustu þáttum tungumáls og þar með tungumálanáms. Það er engin tilviljun að við spyrjum viðmælendur okkar hvort þeir tali málið en ekki hvort þeir skrifi málið eða geti lesið. Sá hluti sem reynir ef til vill hvað mest á í samskiptum okkar á öðru tungumáli er talað mál. Talað mál í kennslu erlendra tungumála fær nú aukið vægi í nýútkominni aðalnámskrá grunnskóla miðað við þá á undan. Þegar þess háttar breytingar eru gerðar er mikilvægt að fylgja þeim eftir með athugun á stöðunni eins og hún er í grunnskólum landsins. Rannsóknin sem hér var gerð beindist að starfandi enskukennurum og því hvernig kennslufyrirkomulagi þeirra og námsmati er háttað þegar kemur að töluðu máli. Margt forvitnilegt kom á óvart við greiningu niðurstaðna úr könnuninni, meðal annars hversu fáir hafa kynnt sér aðalnámskrá grunnskóla 2007 og hversu hratt vægi kennslu talaðs máls virðist falla milli bekkja.
    Lykilorð: Enska , talað mál.

Athugasemdir: 
  • Grunnskólabraut
Samþykkt: 
  • 22.9.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1937


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Microsoft Word - LOKARITGERDIN.pdf534.97 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna