is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/193

Titill: 
  • A-ONE matstækið : forprófun á útgáfu fyrir börn
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Taugaþroski hefur áhrif á möguleika barna til að taka þátt í iðju. Framkæmd iðju krefst ákveðins þroskastigs mismunandi þroskaþátta en þroskafrávik takmarka framkvæmd hjá börnum með svipuðum hætti og taugaeinkenni hjá fullorðnum. Stöðluð matstæki eru undirstaða þess að fagmenn geti greint þroskafrávik hjá börnum. Árnadóttir OT-ADL Neurobehavioral Evaluation (A-ONE) er staðlað iðjumiðað áhorfsmatstæki. Metin er færni við iðju á fimm sviðum daglegra athafna á ADL kvarða og taugaatferliskvarða. Þróuð hefur verið útgáfa af matstækinu til að meta börn. Sömu svið eru metin á ADL kvarða og þroskaþáttakvarða . Tilgangur lokaverkefnisins var að forprófa barnaútgáfu A-ONE með því að kanna frammistöðu 5-6 ára norðlenskra barna. Úrtakið var 21 barn af þremur leikskólum á Norðurlandi. Notuð var lýsandi megindleg rannsóknaraðferð ásamt ályktunartölfræði. Frammistaða barna var skoðuð á öllum kvörðum matstækisins og borin saman meðaltalsframmistaða milli ADL sviða og kynja. Niðurstöður leiddu í ljós að matstækið greinir takmörkun á framkvæmd 5-6 ára barna á flestum einstökum atriðum ADL kvarðans og öllum ADL sviðum nema einu. Í samræmi við það greindist takmörkun á einstaka atriðum beggja þroskaþáttakvarða. Ekki var munur á frammistöðu kynja. Þar sem forprófunin náði aðeins til lítils úrtaks eins aldurshóps barna hafa niðurstöður lítið alhæfingargildi. Barnaútgáfa A-ONE veitir annarskonar upplýsingar en önnur matstæki samkvæmt leit í erlendum heimildum og heimildum um matstæki sem notuð eru hér á landi. Sú staðreynd ásamt niðurstöðum forprófunar gefa ástæðu til frekari rannsókna á barnaútgáfu A-ONE.
    Lykilhugtök: Árnadóttir OT-ADL Neurobehavioral Evalution (A-ONE), Framkvæmd iðju, matstæki, þroskaþættir, taugaatferli

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2006
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/193


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
AOne.pdf1.04 MBTakmarkaðurA-ONE matstækið - heildPDF
AOne_e.pdf90.79 kBOpinnA-ONE matstækið - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
AOne_h.pdf106.07 kBOpinnA-ONE matstækið - heimildaskráPDFSkoða/Opna
AOne_u.pdf94.04 kBOpinnA-ONE matstækið - útdrátturPDFSkoða/Opna