is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1940

Titill: 
  • „Eruð þið ekki bara alltaf að leika ykkur?“ : hugmyndir og þekking unglinga á starfsemi félagsmiðstöðva.
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Félagsmiðstöðvar hafa verið starfandi á Íslandi síðan árið 1957 og vinna þær aðallega að forvarnarstarfi og munu ætíð gera það. Hlutverk starfsmanna hefur breyst og þróast með árunum og í dag er hlutverk þeirra meðal annars að vera jafningi unglinganna, vera til staðar og ráðleggja á faglegan hátt. Gerð var lítil rannsókn og tekin voru viðtöl við átta unglinga á aldrinum 13-16 ára og þau meðal annars spurð að því hver væri tilgangur félagsmiðstöðva, hlutverk starfsmanna, hvað þau hefðu lært á því að taka þátt í starfi félagsmiðstöðva og hvaða eiginleika góður starfsmaður eigi að hafa. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að unglingarnir hafi takmarkaða þekkingu á tilgangi félagsmiðstöðva og á hlutverki starfsmanna, en þau segjast læra ótal margt á því að taka þátt í starfinu. Í ritgerðinni er einnig fjallað um þær breytingar sem eiga sér stað þegar einstaklingur gengur inn í unglingsárin, gildi tómstunda og það nám sem á sér stað í félagsmiðstöðvastarfi.

Athugasemdir: 
  • Tómstunda- og félagsmálabraut
Samþykkt: 
  • 23.9.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1940


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
B.ed.-ragnheidur erna.pdf862.83 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna