Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19466
Verkefni þetta er fyrirtækjaverkefni sem unnið var í samstarfi við bílaleiguna Geysi ehf. Verkefnið er tvískipt þar sem fyrri hlutinn fjallar um fræðina á bakvið verðmat fyrirtækja og síðari hlutinn nýtir fræðina til að gera verðmat á bílaleigunni Geysi. Fræðilegi hlutinn byrjar á því að fara yfir helstu forsendur verðmatsins og fræðin á bakvið þær forsendur ásamt því að skoða sérstaklega verðmat á óskráðum fyrirtækjum.
Í verðmatinu sjálfu er gert 10 ára sjóðstreymislíkan samkvæmt frjálsu sjóðstreymisaðferðinni og það reiknað í þremur mismunandi sviðsmyndum auk þess að verðmæti fyrirtækisins var reiknað með og án samlegðaráhrifa. Loks voru reiknaðar verðmatskennitölur út frá niðurstöðunum og þær bornar saman við samanburðarfyrirtæki.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Verðmat á bílaleigunni Geysi skemman.pdf | 1.35 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |