Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19538
Stjórnarráð Íslands hefur undanfarin ár unnið að innleiðingu verkefnisstjórnunar. Var farið í þá vegferð í framhaldi af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis þar sem kom fram mikil gagnrýni á stjórnsýsluna vegna skorts á faglegum vinnubrögðum. Úttekt á stöðu verkefnastjórnunarlegs þroska innan stjórnsýslunnar var gerð á svipuðum tíma sem staðfesti það mat. Markmið þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á hvernig hægt er að nýta þroskalíkan verkefnastjórnunar markvisst samhliða innleiðingu verkefnisstjórnunar til að setja markmið, meta árangur og gera áætlanir um áframhaldandi úrbætur.
Rannsóknin byggir að hluta til á skrifborðsrannsókn en einnig voru tekin viðtöl við embættismenn og sérfræðinga í sex ráðuneytum af átta.
Í niðurstöðum kemur berlega í ljós að mikil tækifæri liggja í markvissri notkun þroskalíkans til að styðja enn frekar við framgang innleiðingar verkefnisstjórnunar innan Stjórnarráðsins.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Notagildi þroskalíkans við innleiðingu verkefnastjórnuna_KJ.pdf | 214.88 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |