Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19541
Í þessari rannsókn var leitast við að greina hvað Íslenskar getraunir eru að gera í nýsköpun og vöruþróun í dag, með sérstaka áherslu á sölukerfi félaganna sem heldur utan um 40% af veltu Íslenskra getrauna á enska getrauna seðlinum.
Gerðar voru tvær kannanir til að skoða stöðuna á nýsköpun og vöruþróun Íslenskra getrauna. Bæði var leitað svara hjá íþróttafélögunum og hinum almenna tippara. Skoðað var sérstaklega hvort viðurkenndar aðferðir í nýsköpun og vöruþróun eins og Þrepa og gáttaferli Coopers og neytendahegðun á Internetinu væri tæki sem Íslenskar getraunir ættu að tileinka sér við næstu skref í sinni vöruþróun.
Ljóst er að vöruþróun hjá Íslenskum getraunum hefur ekki verið mikil og nánast engu verið breytt í þeim kerfum sem notast er við í dag og gerð voru í kringum aldamót. Þeir notendur í dag sem eiga og nota snjallsíma og spjaldtölvur geta sem dæmi ekki notað sölukerfi félagana því það er skrifað í Java. Íslenskar getraunir þurfa að höfða til yngri notenda, nýta sér nýjustu tækni og nýjustu samskipta leiðir þegar þróaðar eru nýjar vörur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
VEÐJAÐ Á FRAMTÍÐINA!.pdf | 1.17 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |