Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19595
Í þessari ritgerð verður fjallað um kvenfanga á Íslandi og áhrif fangelsisvistar á fanga og fjölskyldur þeirra. Markmið þessa verkefnis er að auka þekkingu og áhuga á málefnum kvenfanga og aðstandenda þeirra á Íslandi.
Aðeins um 5% fanga á hverjum tíma eru konur en margt bendir til að konum sem stunda afbrot sé að fjölga. Helstu brotin sem konur fremja eru auðgunarbrot/skjalabrot og fíkniefnabrot. Ritgerðin fjallar um tengslakenningar og stimplunarkenningar og áhrif þeirra. Rætt er um mikilvægi fjölskyldu fyrir fangann og bakgrunnur kvenfanga er skoðaður. Fjallað er um mæður í fangelsum en 70% íslenskra kvenfanga eiga börn. Aðstaða kvennanna í Fangelsinu Kópavogsbraut 17 er skoðuð. Fjallað er um þær leiðir sem í boði er fyrir fjölskyldu og fanga til að viðhalda góðu sambandi meðan á afplánun stendur. Farið er yfir þann stuðning sem í boði er fyrir kvenfanga innan og utan fangelsisins. Í lok ritgerðarinnar er fjallað um áhrif fangelsisvistar á fangann og fjölskyldu hans í almennu samhengi og í ljósi tengsla- og stimplunarkenninga.
Niðurstöður ritgerðarinnar sýna að fjölskyldur gegna mikilvægu hlutverki í að styðja fangann meðan á afplánun stendur. Áhrif fangelsisvistar á börn og aðstandendur fanga eru margþætt. Þegar fjölskyldumeðlimur fer í fangelsi getur það haft í för með sér upplausn innan fjölskyldunnar og breytt fjölskyldumynstur. Meðlimir fjölskyldunnar taka fangelsisvistina mis nærri sér. Áhrif vistarinnar á fangann sjálfann eru margvísleg en kvenfangar upplifa fleiri vandamál en karlfangar og finna oft fyrir miklu þunglyndi, sektarkennd og einangrun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaeintak-pdf.pdf | 462.14 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |