Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19675
Þessi ritgerð er lokaverkefni í BA-námi í íslensku sem öðru máli fyrir erlenda stúdenta í Háskóla Íslands.
Ritgerðin fjallar um hugtökin móðurmál, annað mál, tvítyngi og máltileinkun fullorðinna. Auk þess er fjallað um aðlögun innflytjenda og hugtakið menningaráfall í því sambandi. Þessi hugtök eru notuð til þess að skilja betur það ferli og hindranir sem fólk þarf að fara í gegnum til þess að læra annað mál og aðlagast nýju samfélagi. Gerð var könnun þar sem tekin voru viðtöl við sjö Taílendinga sem hafa verið hér á Íslandi lengur en þrjú ár. Í könnuninni voru þeir m.a. spurðir um notkun sína á íslensku, íslenskunámskeið og viðhorf þeirra til íslenskunáms. Í ritgerðinni eru niðurstöður könnunarinnar settar fram og fjallað um þær.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA. ritgerð tilbúin_HUG.pdf | 220.17 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |