Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/196
Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvort áfallastreita væri til staðar meðal sjúkraflutninga- og slökkviliðsmanna og hvort þörf væri á stuðning fyrir þessar starfsstéttir. Erlendar rannsóknir sýna að starfstengd streita sjúkraflutninga- og slökkviliðsmanna getur þróast í áfallastreitu og valdið þeim erfiðleikum við líf og störf.
Við gerð rannsóknarinnar var notað megindlegt rannsóknarsnið. Í úrtaki voru allir sjúkraflutninga- og slökkviliðsmenn starfandi á Akureyri, Húsavík og Ísafirði, alls 50 starfsmenn. Spurningalistar voru sendir á slökkviliðsstöðvar ofantaldra staða og stóð rannsóknin yfir í tvær vikur. Fjörutíu einstaklingar svöruðu eða 80%. Spurningalistinn var hannaður af rannsakendum með hliðsjón af tveimur erlendum mælitækjum er meta áfallastreitu samkvæmt greiningarskilyrðum DSM-IV á áfallastreitu.
Helstu niðurstöður voru að 60% fundu fyrir streitu í starfi og voru 10% þátttakenda með fulla greiningu fyrir áfallastreitu. Alls voru 40% með fimm eða fleiri einkenni áfallastreitu en það þurfti sjö einkenni til greiningar. Langflestir höfðu þörf fyrir að ræða alvarlega atvik tengd starfi og var algengast að þeir ræddu við samstarfsaðila. Meirihluti þátttakenda taldi þörf fyrir stuðning í starfi og þá helst á fyrstu fimm árunum. Algengasta form stuðnings sem var í boði, var aðgangur að áfallateymi en minnihluti þátttakenda hafði nýtt sér þá þjónustu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
afallastr.pdf | 3.16 MB | Takmarkaður | Áfallastreita meðal sjúkraflutninga- og slökkviliðsmanna - heild | ||
afallastr-e.pdf | 120.13 kB | Opinn | Áfallastreita meðal sjúkraflutninga- og slökkviliðsmanna - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
afallastr-h.pdf | 98.3 kB | Opinn | Áfallastreita meðal sjúkraflutninga- og slökkviliðsmanna - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
afallastr-u.pdf | 93.14 kB | Opinn | Áfallastreita meðal sjúkraflutninga- og slökkviliðsmanna - útdráttur | Skoða/Opna |