Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1987
Lokaverkefni þetta til B.Ed.-gráðu, Menntavísindasviði, Kennaradeild, leikskólakennarafræði fjallar um hvernig við nýttum Krummasögu Jóhannesar úr Kötlum í starfi með börnum í leikskóla. Viðfangsefnið var fuglinn sjálfur og sá boðskapur sem fram kemur í Krummasögu. Við segjum frá hvernig við efldum áhuga barnanna á hrafninum, hvernig við tengdum ljóðið hans Jóhannesar námssviðum sem eru í aðalnámskrá leikskóla. Eins hvernig sá uppeldislegi boðskapur sem finna má í textanum var notaður til að efla samkennd milli barnanna. Við skráðum hjá okkur allar þær hugmyndir og spurningar sem upp komu í vettvangsferðum og skapandi starfi sem og í umræðuhópum og settum inn í verkefnið. Stuðst var við hugmyndafræði John´s Dewey, Piaget og vitnað í rannsókn Kristínar Norðdahl sem hún vann á leikskólanum Álfheimum á Selfossi, 2002-2004.
Lykilorð: Krummi, hrafnar, ljóð, leikskóli, umhyggja, útivera.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
355 Skemmu).pdf | 366.53 kB | Lokaður | Heildartexti |