is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19887

Titill: 
  • „Nú ber hörmung til handa.“ Viðhorf til múslima og áform um mosku í Reykjavík
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi er lokaverkefni í hagnýtri þjóðfræði sem samanstendur auk þessa texta af fjórum útvarpsþáttum. Skoðaðar verða birtingarmyndir múslima í fjölmiðlum, kvikmyndum og á veraldarvefnum og rýnt í þá orðræðu sem þar birtist. Jafnframt er velt fyrir sér viðbrögðum samfélagsins við fyrirhugaðri moskubyggingu í Reykjavík og gagnrýni þeirra sem harðast mótmæltu. Viðbrögðin eru borin saman við mótmæli er áttu sér stað um samskonar mál í New York borg. Er ótti þeirra sem beina mótmælum sínum gegn íslamtrú meiri en gagnvart öðrum trúarbrögðum og ef svo er, hverju sætir það? Í mörg ár hefur fréttaflutningur af Miðausturlöndum, múslimum, menningu þeirra og trúarbrögðum dregið upp svart hvíta mynd þar sem glögglega birtist kunnuleg orðræða, um „okkur“ og „hina“.
    Í ritgerðinni er jafnframt fjallað um áhrif kvikmynda á viðhorf almennings. Kenningar bandaríska fræðimannsins Jack Shaheen eru skoðaðar, en hann hefur rannsakað sögu Hollywoodmynda og rýnt í þá ímynd sem dregin er upp af múslimum þar. Hann heldur því fram að pólitík og Hollywood séu tengd nánum böndum og málefni líðandi stundar speglist iðulega í efniviði kvikmyndanna. Viðmælendur útvarpsþáttanna voru þau Bryndís Björgvinsdóttir þjóðfræðingur, Kristján Þór Sigurðsson mannfræðingur, Magnús Þorkell Bernharðsson miðausturlandafræðingur, Salmann Tamimi fyrrverandi formaður félags múslima og Sverrir Agnarsson núverandi formaður sama félags. Þau benda á hvernig við gerumst ítrekað sek um að einfalda bæði söguna, fréttir og frásagnir er varða múslima og menningarheim þeirra, þar sem bæði sannleikurinn og staðreyndir eru látnar liggja milli hluta.

Athugasemdir: 
  • Geisladiskur fylgir með prentuðu eintaki sem er varðveitt í Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni
Samþykkt: 
  • 7.10.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/19887


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Kolbrá Höskuldsdóttir.pdf1.15 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna