is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Hólum > Ferðamáladeild > BA verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/19934

Titill: 
  • Þorskar á þurru landi og þorskar í sjó hér mæla sér mót : er pláss fyrir ferðaþjónustu við hlið útgerðar í Grundarfjarðarhöfn?
  • Titill er á ensku Where fish and tourists meet, can the heart of Grundarfjörður still beat? - Can two different industries, tourism and fish industry at the Grundarfjörður harbour come together?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á sambúð tveggja atvinnugreina í sjávarþorpi. Atvinnugreinarnar eru hinn gamalgróni sjávarútvegur og hin unga ferðaþjónusta. Sjávarþorpið sem um ræðir er Grundarfjörður á Snæfellsnesi, hjarta bæjarins slær við höfnina. Þar heilsast þessar tvær atvinnugreinar, þar fæddist sjávarþorpið og þar byggist upp framtíð samfélagsins sem nú er orðin bær, Grundarfjarðarbær.
    Landsbyggðin hefur átt undir högg að sækja undanfarin ár, undirstöðu atvinnugreinarnar hafa orðið fyrir skerðingum og tilfærslum sem hafa komið illa niður á íbúum og samfélögum.
    Eigindlegri rannsókn var beitt og tekin viðtöl við aðila frá báðum atvinnugreinunum og frá bæjaryfirvöldum, fólkið var valið með tilliti til starfa þeirra og reynslu.
    Helstu niðurstöður voru að sjávarútvegur og ferðaþjónusta eiga vel saman og er fátt því til fyrirstöðu að höfnin og hafnarsvæðið geti ekki borið báðar atvinnugreinarnar.
    Niðurstaða rannsóknarinnar er því að vilji er allt sem þarf. Stjórnvöld og íbúar þurfa að starfa saman að heill byggðarlagsins á sjálfbæran hátt. Auðlindirnar eru til staðar en það þarf sterka stefnu, vilja og samvinnu til þess að byggð blómstri og samfélagið allt hafi hag af.
    Lykilorð: Grundarfjörður, sjávarútvegur, ferðaþjónusta, skemmtiferðaskip, sjálfbærni.

  • The main aim of this essay is to look at two industries, the fish industry and tourism, in the village Grundarfjörður in Iceland and see how well they can co-operate. The harbour is the heart of Grundarfjörður and the reason for its existance. Today it continues to be so heading towards the future. Recently rural areas in Iceland have been facing changes affecting inhabitants and the community. Qualitative methods were used to collect data and interviews were taken with people from the fish industry, tourism industry and the government. Qualitative methods were used to collect data. The fish industry and tourism can co-oporate and the harbour in Grundarfjörður can serve several industries. Government, industries and inhabitants in Grundarfjörður need to see the benefit of working together in a sustainable way for the whole communities future. The resources are sufficient but a strong policy, good-will and co-operation are nessessary for the community to bloom and benefit from it.
    Keywords: Grundarfjörður, fish industry, tourism, cruise ships, sustainable development

Samþykkt: 
  • 20.10.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/19934


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA.ritgerð Olga Sædís Aðalsteinsd..pdf1.88 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna