is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/20080

Titill: 
  • Áttan - uppeldisráðgjöf barnaverndar Kópavogs. Mat og viðhorf tilvísenda
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Aukin áhersla hefur verið innan barnaverndar á að veita foreldrum ráðgjöf við uppeldi barna sinna. Áttan - uppeldisráðgjöf er úrræði barnaverndar Kópavogs. Hún hefur verið starfrækt frá árinu 2011 og er uppeldisráðgjöf sem fer fram inn á heimili fjölskyldna. Markmið rannsóknarinnar var að meta reynslu fagmanna barnaverndar Kópavogs af úrræðinu og kanna viðhorf þeirra til uppeldisráðgjafar Áttunnar. Eigindlegri rannsóknaraðferð var beitt og tekin voru viðtöl við sjö ráðgjafa sem höfðu vísað fjölskyldum í Áttuna. Tilgangurinn með rannsókninni var að meta þá þjónustu sem starfsmenn Áttunnar veita og hvernig sú þjónusta virðist nýtast þeim fjölskyldum sem þangað er vísað auk þess að varpa ljósi á það sem hefur tekist vel og hvað mætti betur fara, með það í huga að þróa þjónustuna enn frekar.
    Meginniðurstöður rannsóknarinnar eru að Áttan er uppeldisráðgjöf sem nýttist helst þeim fjölskyldum þar sem hegðunarvandi barna var til staðar. Viðmælendur töldu Áttuna góða viðbót við önnur stuðningsúrræði í Kópavogi en að hún ætti frekar heima hjá félagsþjónustu þar sem mál þar væru ekki alvarleg og margþætt. Í málum sem unnin eru hjá barnavernd er vandi fjölskyldna margvíslegur og því nýtist Áttan ekki eins vel þar og tilvísendur höfðu vonast til. Þó töldu ráðgjafar að uppeldisráðgjöfin gæti nýst við að kortleggja betur vandann.
    Ályktun rannsakanda er að skilgreina þurfi betur þann hóp sem vísað er til Áttunnar því hún nýtist best þeim hópi fjölskyldna sem eiga ekki við fjölþættan vanda að etja. Félagsþjónustan þarf að hafa aðgang að úrræði svo mál sem þurfa ekki aðkomu barnaverndar endi ekki á borði hjá þeim. Niðurstöður rannsókna hafa bent til þess að til að fjölskyldur nái að vinna á sínum vanda skiptir máli að þeim séu útveguð úrræði sem henta þeirra þörfum.

  • Útdráttur er á ensku

    An increased focus has been within the Child Protection-sector on assisting parents in their parenting. Áttan – parental advice is a method within the Child Protection-sector in Kópavogur and has been used since 2011, as a parenting assistance in the homes of families in need. The purpose of this research was to assess the experience of relevant professionals in the Child Protection-sector of this resource and evaluate their attitude towards it. The research-method chosen is qualitative, seven advisors who had referred families to Áttan were interviewed, with the purpose of assessing the service offered and its usefulness to the families, as well as bringing to light what has been successful and where there is room for improvement with a view to bettering the service furthermore.
    The main conclusions are that Áttan is a parenting advisatory resource mainly useful to families battling with children’s behavioural problems. Interviewees considered it a good addition to other supportive measures in Kópavogur, but that it should rather be housed within the Social Services-sector, where problems dealt with are not as multifaceted and complex. Cases in the Child Protection-sector tend to be multifaceted and the usefulness of Áttan is not as much as had been hoped, although they thought that the advice might be useful in mapping out problems.
    The researcher has come to the conclusion that a better definition of the group referred to Áttan is needed in order to help families not dealing with a multifaceted problem. The Social Services-sector needs to gain access to the resource so that cases not requiring intervention by Child Protection can be dealt with differently. Research has shown that in order for families to solve their problems the relevant resources must be made accessible to them.

Samþykkt: 
  • 24.11.2014
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/20080


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Hildur Aðalsteinsdóttir- nýjasta.pdf879.74 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna