Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/20107
Meirihluti einstaklinga á í nánu sambandi við annan einstakling á lífsleiðinni, slík sambönd leiða oftar en ekki til sambúðar og svo hjónabands síðar meir. Fjöldi rannsókna hefur sýnt fram á undirskipan kvenna á opinbera sviði samfélagsins. Til dæmis í formi launamunar kynjanna og einnig er oft á tíðum talað um ákveðinn glervegg á vinnumarkaðnum, konur nái visst langt en rekist svo á ósýnilegan vegg sem gerir þeim ókleift að ná lengra.
Markmið þessa verkefnis var að skoða þessa meintu undirskipan, ekki aðeins á opinbera sviðinu heldur í einkalífinu líka. Eins er markmiðið með ritsmíðinni að fá innsýn í veruleika fólks, veruleikann sem á sér stað innan veggja heimilisins, hvernig fólk skilgreinir stöðu sína þar og hvort að sambúð einstaklinga sé almennt á jafnréttisgrundvelli. Ritsmíðin gefur innsýn í jafnrétti á meðal sambúðarfólks á Íslandi; jafnrétti einkalífsins. Í mörg horn er að líta þegar margþætt og flókið fyrirbæri á borð við jafnrétti er rannsakað. Sérstaklega þegar farið er inn á persónulegt svæði eins og heimili fólks.
Ritgerðin byggir á viðtalsrannsókn sem framkvæmd var meðal einstaklinga af báðum kynjum sem öll áttu það sameiginlegt að vera í sambúð. Rannsóknin átti sér stað á vordögum 2014.
Lykilorð: mannfræði, jafnrétti, femínismi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MAfinal.pdf | 1.13 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |