Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/20147
Í 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 er að finna meginreglu er lítur að upplýsingarétti almennings til aðgangs að gögnum úr stjórnsýslunni. Í lögunum er að finna nokkrar undanþágur frá þeirri reglu og verður hér lögð áhersla á að fjalla um undanþágu sem er að finna í 1. málsl. 9. gr. upplýsingalaga.
Í upphafi verður farið yfir hvað felst í upplýsingarétti almennt, bæði á grundvelli upplýsingalaga og stjórnsýslulaga. Í framhaldi verður litið til þess hvaða takmarkanir eru lögbundnar og loks fjallað sérstaklega um 1. málsl. 9. gr. Ætlunin er að rannsaka hvaða upplýsingar falla undir einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga og geta þar með réttlætt takmarkanir á meginreglunni. Ákvæðið er í formi vísireglu en af því leiðir að ekki er skýrt til hvaða atriða undanþágan tekur. Markmið ritgerðarinnar er að skýra betur hvað í reglunni felst en til þess þarf að skoða þau sjónarmið sem stjórnvöld hafa beitt við matið, túlkun fræðimanna á ákvæðinu ásamt því að varpa ljósi á framkvæmd úrskurðarnefndar um upplýsingamál.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Berglind Glóð Garðarsdóttir.pdf | 424.53 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |