Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2014
Í þessari rannsókn, sem er tilviksrannsókn, eru bornar saman þrjár kennslubækur gefnar út fyrir 8. bekk síðasta aldarfjórðung og þær skoðaður með tilliti til þróunar opinberrar námskrár. Skoðuð er framsetning bókanna á efni, inntaki, hvers konar viðhorf til stærðfræði birtis í þeim, áherslur á kennsluaðferðir og hvers konar stærðfræðilegrar hæfni er krafist af nemendum.
Niðurstöður sýna töluverðan mun á bókunum hvað ofantalda þætti varðar.
Síðustu árin hefur þróun í gerð kennslubóka í stærðfræði fyrir áttunda bekk verið í samræmi við þróun námskrár og markmið. Nýjasta kennslubókin Átta – tíu er í mestu samræmi við opinberar námskrár en sú kennslubók sem mest hefur verið notuð síðastliðin tuttugu ár, Almenn stærðfræði I, hefur hins vegar í veigamiklum atriðum aðrar áherslur en þær sem birtast í opinberum námskrám og víkur mun meira frá markmiðum þeirra en bækurnar Átta – tíu og Talnaspegill/Hornalína sem lítið hafa verið notaðar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lok9.pdf | 1.11 MB | Opinn | Skoða/Opna |