is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2016

Titill: 
  • Það skiptir svo miklu máli hvernig þetta er gert fyrir námið : námsmat frá sjónarhóli nemenda.
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Rannsóknin fjallar um námsmat og var ætlað að leita þekkingar og skilnings á reynslu nemenda af námsmati. Einnig var henni ætlað að veita upplýsingar um hvernig nemendur teldu námsmatið hafa nýst sér til árangurs í námi.
    Rannsóknin var eigindleg og byggðist á átta rýnihópaviðtölum þar sem rætt var við 48 nemendur, annars vegar úr 10. bekk í grunnskóla og hins vegar nemendur á fyrsta ári í framhaldskóla. Nemendur komu frá tveimur grunnskólum sem höfðu ólíka stefnu í námsmati.
    Rannsóknin sýndi að nemendur vilja leiðsagnarmat (e. formative assessment). Þeir vildu leiðbeinandi endurgjöf á vinnu sína, endurgjöf sem snýst um verkefni þeirra og vinnuferlið en þeir vildu ekki endurgjöf sem beinist að þeim sjálfum eins og klapp á kollinn. Rannsóknin sýndi að þátttakendum fannst að stór lokapróf og samræmd próf kölluðu á utanbókarlærdóm og segðu ekki mikið um þekkingu nemenda né færni. Nemendur sem rætt var við álitu að betra væri að meta stöðu þeirra í námi út frá stærri verkefnum, svo sem ritgerðum og fyrirlestrum sem nemendur halda sjálfir. Auk þess kom fram að þeir töldu að slík verkefni gætu aukið áhuga þeirra á námi og væru marktækur vitnisburður um hvernig námsmenn þeir væru.
    Lykilorð: Lokamat, reynsla nemenda.

Athugasemdir: 
  • M.Ed. í kennslufræði
Samþykkt: 
  • 21.11.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2016


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ragnheidurherm_meistaraverkefni_2008.pdf730.73 kBOpinnHeildartexti PDFSkoða/Opna