is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/20310

Titill: 
  • Kostnaðar virknigreining á viðhaldsmeðferð með Infliximab hjá sjúklingum með slæman Crohns sjúkdóm
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Notkun TNF-alfa hemla hefur aukist á Íslandi undanfarin ár en þeir flokkast sem kostnaðarsöm og vandmeðfarin lyf. Infliximab er mest notaða lyfið í þessum lyfjaflokki og er meðal annars notað sem meðferð við Crohns sjúkdómi. Lyfjameðferð með infliximab gegn Crohns sjúkdómi er kostnaðarsöm en árangur lyfjameðferðarinnar er betri en árangur hefðbundinnar lyfjameðferð með steragjöfum. Viðfangsefni þessarar rannsóknar er að kanna hvort meðferð með infliximab samanborið við hefðbundna meðferð gegn slæmum Crohns sjúkdómi geti talist kostnaðar virk meðferð.
    Notast er við Markov líkan með fjórum heilsustigum og gert er ráð fyrir eins árs meðferðartíma. Mögulegt er að flytjast milli heilsustiga mánaðarlega í líkaninu en allir byrja í heilsustiginu virkur sjúkdómur. Flutningslíkur milli heilsustiga eru fengnar úr erlendum rannsóknum en notast er við íslenska kostnaðarútreikninga. Við gerð kostnaðarútreikninga er gert ráð fyrir sýn heilbrigðisyfirvalda.
    Grunnniðurstaða rannsóknarinnar er að kostnaður við meðferð með infliximab er 1.100.000kr meiri en kostnaður hefðbundinnar meðferðar og lífsgæði 0,09 QALY gildum hærri sem gefur kostnaðar virknihlutfallið 12.553.638kr. Þær breytur sem hvað mestu máli skipta fyrir niðurstöðu rannsóknarinnar eru kostnaður beggja meðferða, kostnaður við skurðaðgerð og virkni hefðbundinnar meðferðar. Ef meðferðatímabilið er lengt úr einu ári í tvö eða fimm ár hækkar kostnaðar virknihlutfallið einnig verulega vegna hlutfallslega meiri hækkunar á kostnaði en lífsgæða.
    Erfitt er að segja hvort meðferð með infliximab gegn slæmum Crohns sjúkdómi sé kostnaðar virk samanborið við hefðbundna meðferð ef greiðsluvilji fyrir hvert gæðavegið lífár er ekki þekktur. Ef miðað er við greiðsluvilja sem samsvarar þrefaldri þjóðarframleiðslu á mann eru 81% líkur á að meðferð með Infliximab gegn slæmum Crohns sjúkdómi teljist kostnaðar virk meðferð.

  • Útdráttur er á ensku

    The use of TNF-alpha inhibitors has increased in Iceland in recent years and drugs in this class have been classified as expensive and delicate. Infliximab is the most widely used drug in this drug class and it is used to treat Chron´s disease among other diseases. Treatment with Infliximab against Crohn´s disease is costly but more effective than standard therapy with corticosteroids. The subject of this study is to investigate whether treatment with Infliximab compared with conventional treatment for severe Crohn´s disease can be considered cost-effective.
    A Markov model with four health stages is used and time of treatment is one year. It is possible to move between health stages once every month but all subjects start in the health stage of active disease. Transition probabilities between health stages are obtained from foreign studies but cost calculations are retrieved from Icelandic costing data. When calculating the cost, perspective of the Icelandic health authority is used.
    The basic conclusion of the study is that the cost of treatment with Infliximab is 1,100,000ISK higher than the cost of conventional treatment and quality of live is 0.09 QALY higher, giving incremental cost-effectiveness ratio of 12,553,638ISK. The variables most relevant to the outcome of the study are cost of both treatments, cost of surgery and effectiveness of both treatments. If the treatment period is extended from one year to two or five years the incremental cost-effectiveness ratio increases because cost rises relatively more than quality of life.
    It is difficult to say whether treatment with Infliximab for severe Chron´s disease is cost-effective compared to conventional therapy if willingness to pay per quality adjusted life year is not known. Assuming that willingness to pay equals three times per capita GDP it is 81% chance that treatment with Infliximab for severe Crohn´s disease can be considered cost-effective treatment.

Samþykkt: 
  • 9.1.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/20310


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ms heilsuhagfræði.pdf359.6 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna