Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/20336
Í þessari ritgerð verður fjallað um söguna af Griseldu eins og hún birtist í verkum Geoffrey Chaucers og Giovanni Boccaccios. Þótt útgáfur þeirra Boccaccios og Chaucers séu vissulega líkar, enda í grunninn sama sagan, urðu þónokkrar breytingar á sögunni í meðförum Chaucers. Í ritgerðinni verða persónur Griseldu og eiginmanns hennar Walters/Gualtieri, eins og þær birtast í útgáfum Boccaccios og Chaucers, bornar saman og sýnt fram á dýpri persónusköpun í útgáfu Chaucers af sögunni.
Auk þess verður rýnt í uppruna sögunnar af Griseldu og sagnaminni sem fræðimenn hafa viljað tengja henni verða einnig könnuð.
Þá verður persóna Griseldu skoðuð í ljósi kristilegra táknmynda. Sjónum verður einkum beint að Job úr Jobsbók Gamla testamentisins en í Biblíunni er Job táknmynd hins trúaða manns sem gengur í gegnum miklar raunir og sannar trúfestu sína og hollustu við Guð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
LokaritgerðFjólaPDF.pdf | 348.01 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |