is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/20366

Titill: 
  • Hverjir eru foreldrar mínir? Staðgöngumæðrun út frá guðfræðilegu og siðfræðilegu sjónarhorni
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð fjallar um staðgöngumæðrun er og hvað siðfræði og guðfræði geta lagt til umræðu um hana. Allt sem tengist staðgöngumæðrun virðist mjög flókið og siðferðilegu álitamálin mörg. Til þess að varpa ljósi á þau verða drög að frumvarpi til laga um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni frá 3. nóvember 2014 skoðuð með sérstöku tilliti til siðfræði og guðfræði.
    Svo það sé hægt þarf að kynna sér helstu strauma og stefnur í siðfræðinni. Spurt er hvort hún geti lagt eitthvað til efnisins sem og siðfræðileg guðfræði og mannskilningur Biblíunnar. Er einhver ákveðin siðfræði og mannskilningur sem móta frumvarpsdrögin ?
    Megin spurningu ritgerðarinnar má draga saman í þessa setningu; hefur kristinn mannskilningur eitthvað fram að færa? Siðfræði og guðfræðileg siðfræði með áherslu á kristinn mannskilning hefur margt að leggja til umræðunnar um frumvarp til laga um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni, en líta ber til allra þeirra sem eru þátttakendur í ferlinu og þeir njóti allir virðingar.

  • Útdráttur er á ensku

    This paper focuses on surrogacy and what ethics and theology can help in the discussion about it. Everything related to surrogacy seems very complicated and ethical issues are many. In that order it is necessary to shed the light on the draft concerning legislation on altruistic surrogacy in Iceland from November 3, 2014, and that will be examined with special regard to ethics and theology.
    The main question of the thesis can be summed up in this sentence; Can Christian understanding have something to offer? Ethics and theological ethics with an emphasis on Christian understanding has a lot to add to the debate concerning altruistic surrogacy.

Samþykkt: 
  • 16.1.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/20366


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
embaettisritgerd_magtheol_prof.pdf1.14 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna