is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2042

Titill: 
  • Ofbeldi á heimilum og líðan unglinga í skóla
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Ritgerðin byggir á niðurstöðum eigindlegrar rannsóknar sem unnin var frá desember 2006 og fram í mars 2008 og fjallar um reynslu unglinga sem búið hafa við ofbeldi á heimilum.
    Markmið rannsóknarinnar var að athuga reynslu og upplifun unglinga af ofbeldi á heimilum. Hún miðaði að því að fá fram sjónarmið viðmælendanna, með áherslu á líðan í skólanum á meðan ofbeldið stóð yfir. Einnig er þess vænst að niðurstöðurnar nýtist skólakerfinu. Rætt var við fimm unglinga á aldrinum 13-17 ára sem allir höfðu upplifað ofbeldi af eigin raun og/eða verið áhorfendur að ofbeldi. Ofbeldinu á heimilinu var lokið og rannsóknin því afturvirk.
    Ég leitaðist við að fá fram raddir unglinganna, heyra skoðanir þeirra og hvernig erfið reynsla heima fyrir hafði haft áhrif á líf þeirra. Reynsla og skoðanir hvers einstaklings voru því í brennidepli.
    Niðurstöðurnar benda til þess að unglingunum hafi liðið frekar vel í skólanum á meðan þeir bjuggu við ofbeldi heima fyrir. Þeir fengu í flestum tilvikum aðstoð og stuðning sem þeir þurftu á að halda. Í mörgum tilvikum upplifðu þeir skólann sem griðastað frá ofbeldinu. Félagar og vinir voru þeim mikilvægir. Það var brýnt að þeirra mati að geta talað við einhvern sem skildi hvað aðstæðurnar á heimilinu væru erfiðar. Unglingarnir leituðu þó ekki til kennara eða starfsfólks skólans með áhyggjur sínar. Unglingarnir óskuðu eftir fræðslu í skólanum um ofbeldi á heimilum og töldu það geta aukið skilning á ofbeldinu.

Athugasemdir: 
  • M.Ed. í uppeldis- og menntunarfræði
Samþykkt: 
  • 8.12.2008
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2042


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
NannaThora_fors.pdf47.62 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna
NannaThora_Meistararitgerd_meginmal.pdf523.6 kBOpinnMeginmálPDFSkoða/Opna
NannaThora_Sam.pdf89.17 kBOpinnSamþykki PDFSkoða/Opna
NannaTHora_Vidauki1.pdf71.4 kBOpinnViðauki1PDFSkoða/Opna
NannaThora_Vidauki2.pdf85.96 kBOpinnViðauki2PDFSkoða/Opna
NannaThora_vidauki_augl6.pdf77.41 kBOpinnViðauki - auglýsingPDFSkoða/Opna