Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2042
Ritgerðin byggir á niðurstöðum eigindlegrar rannsóknar sem unnin var frá desember 2006 og fram í mars 2008 og fjallar um reynslu unglinga sem búið hafa við ofbeldi á heimilum.
Markmið rannsóknarinnar var að athuga reynslu og upplifun unglinga af ofbeldi á heimilum. Hún miðaði að því að fá fram sjónarmið viðmælendanna, með áherslu á líðan í skólanum á meðan ofbeldið stóð yfir. Einnig er þess vænst að niðurstöðurnar nýtist skólakerfinu. Rætt var við fimm unglinga á aldrinum 13-17 ára sem allir höfðu upplifað ofbeldi af eigin raun og/eða verið áhorfendur að ofbeldi. Ofbeldinu á heimilinu var lokið og rannsóknin því afturvirk.
Ég leitaðist við að fá fram raddir unglinganna, heyra skoðanir þeirra og hvernig erfið reynsla heima fyrir hafði haft áhrif á líf þeirra. Reynsla og skoðanir hvers einstaklings voru því í brennidepli.
Niðurstöðurnar benda til þess að unglingunum hafi liðið frekar vel í skólanum á meðan þeir bjuggu við ofbeldi heima fyrir. Þeir fengu í flestum tilvikum aðstoð og stuðning sem þeir þurftu á að halda. Í mörgum tilvikum upplifðu þeir skólann sem griðastað frá ofbeldinu. Félagar og vinir voru þeim mikilvægir. Það var brýnt að þeirra mati að geta talað við einhvern sem skildi hvað aðstæðurnar á heimilinu væru erfiðar. Unglingarnir leituðu þó ekki til kennara eða starfsfólks skólans með áhyggjur sínar. Unglingarnir óskuðu eftir fræðslu í skólanum um ofbeldi á heimilum og töldu það geta aukið skilning á ofbeldinu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
NannaThora_fors.pdf | 47.62 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
NannaThora_Meistararitgerd_meginmal.pdf | 523.6 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
NannaThora_Sam.pdf | 89.17 kB | Opinn | Samþykki | Skoða/Opna | |
NannaTHora_Vidauki1.pdf | 71.4 kB | Opinn | Viðauki1 | Skoða/Opna | |
NannaThora_Vidauki2.pdf | 85.96 kB | Opinn | Viðauki2 | Skoða/Opna | |
NannaThora_vidauki_augl6.pdf | 77.41 kB | Opinn | Viðauki - auglýsing | Skoða/Opna |