Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/20476
Þegar margar vindmyllur eru staðsettar í þyrpingu (vindlundur, e. wind farm) er notast við safnkerfi til að sameina þá raforku sem vindmyllurnar framleiða. Markmið verkefnisins var að gera samanburð á mismunandi gerðum af safnkerfum fyrir vindlundi, bera saman sverleika strengja, heildarframleiðslu vindlundar og töp á raforku frá vindmyllu að safnstöð þar sem spennan var hækkuð í 220 kV. Notast var við eGRID við hermun á kerfunum en það er rafmagnshönnunarhluti forritsins WindPRO.
Einnig er fjallað almennt um virkni vindmyllna, kröfur ENTSO-E, virkjun vindafls á Íslandi og nýtingu vindorku í heiminum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
RT_ThoraB_Vindmyllur_H14.pdf | 3.8 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |