Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/20539
Fjallað er um misskiptingu auðs, í sögulegu samhengi að litlu leyti og aðeins farið inn á Bandaríkin en svo nánar á Íslandi. Kuznets-Boginn er kynntur ásamt því að fara yfir verk Thomas Piketty um misskiptingu og þróun hennar. Skýrsla OECD er kynnt og er einnig farið inn á brauðmolahagfræði. Deilur Hannesar Hólmsteins og Stefáns Ólafssonar eru skoðaðar létt í tengslum við misskiptingu. Afleiðingar misskiptingar eru skoðaðar og er fjallað meðal annars um barnafátækt á Íslandi. Lágmarkslaun og saga þeirra verða skoðuð á Íslandi sem og í Bandaríkjunum. Vel er farið yfir fjölmargar tilraunir löggjafans á Íslandi til að festa þau í lög. Umræða í Bandaríkjunum og á Íslandi er skoðuð. Spurningalist var sendur á fjölmarga aðila, formenn þingflokka, formenn verkalýðsfélaga sem og fólks í forsvari samtaka sem koma að umræðunni um misskiptingu og lágmarkslaun.
Helstu niðurstöður eru að lágmarkslaun eru of lág, þau duga ekki fyrir framfærslu á höfuðborgarsvæðinu nema fólk lifi við fátæktarmörk. Engin á lágmarkslaunum hefur efni á því að eignast barn. Því tel ég ljóst að lágmarkslaun þurfi að hækka og já, þau eru skynsamleg leið til þess að vinna gegn misskiptingu, meðal annara lausna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ivar Sigurbjornsson BA.pdf | 1.1 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |
Athugsemd: Afritun er óheimil nema með leyfi höfundar.