is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2056

Titill: 
  • Stubbasmiðjan ehf : frá hugmynd að veruleika
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Tilgangur þessa verkefnis var að sýna fram á hvernig viðskiptahugmynd varð að veruleika, þ.e. að varpa ljósi á ferlið frá því að hugmyndin kviknaði meðal frumkvöðla, gerð viðskiptaáætlunar og í framhaldinu stofnun og opnun fyrirtækisins, Stubbasmiðjunnar ehf. Markmiðið var að gera sér grein fyrir hvort fýsilegt væri að stofna lífsstílsverslun fyrir börn á Íslandi og í framhaldinu kanna hvort rekstrargrundvöllur væri fyrir slíka verslun.

    Viðskiptahugmyndin var í grunninn eftirfarandi: Lífstílsverslun með breitt úrval af hönnunar- og gæðavörum fyrir ungabörn, börn og verðandi mæður“. Þarna munu viðskiptavinir finna allt á einum stað fyrir börn og verðandi mæður. Meðal vöruflokka verða húsgögn, smávara, fatnaður, rúmföt, kerrur, vagnar og leikföng ásamt mörgu fleiru.
    Farið var í greiningu á helstu þáttum viðskiptaáætlunar sem höfundi þótti viðeigandi fyrir þetta fyrirtæki og lögð mikil áhersla á markaðsmál og samkeppni. Helstu niðurstöður SVÓT-greiningar leiddu í ljós að ógnanir úr starfsumhverfi fyrirtækja eru afar miklar um þessar mundir. Efnahagsástand og í kjölfarið minnkandi markhópur Stubbasmiðjunnar vega þar mest þar sem markhópurinn var vel skilgreindur við meðal- og hátekjufólk. Veikleikarnir vega þungt við þessar breyttu aðstæður þar sem minna þekkt fyrirtæki hverfa innan um tilboð og útsölur stóru og þekktari fyrirtækjanna.
    Áætlanir um sölu og rekstur hafa tekið miklum breytingum á þeim tíma frá því að viðskiptaáætlun var unnin til dagsins í dag þó svo að einungis séu liðnir níu mánuðir frá stofnun fyrirtækisins. Mikill samdráttur er að eiga sér stað á íslenskum markaði og viðskiptahugmynd sem þótti fýsileg fyrir ári síðan er of háð ytri breytingum til að geta þótt fýsileg enn í dag. Þó svo að styrkur sé í eignatengslum og samvinnu fyrirtækja sem snúa að Stubbasmiðjunni þá er óhjákvæmilegt að horfa til þess að breyta þarf ákveðnum hlutum í rekstri og aðlaga vöruval að breiðari markhóp ef að rekstrargrundvöllur á að vera fyrir fyrirtækið í nýju og breyttu starfsumhverfi.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 11.3.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2056


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
stubbasmidjan_fra hugmynd ad veruleika_heild.pdf1.49 MBLokaður"Stubbasmiðjan ehf - frá hugmynd að veruleika" - heild PDF
stubbasmidjan_fra hugmynd ad veruleika_h.pdf42.87 kBOpinn"Stubbasmiðjan ehf - frá hugmynd að veruleika" - heimildaskrá PDFSkoða/Opna
stubbasmidjan_fra hugmynd ad veruleika_e.pdf12.25 kBOpinn"Stubbasmiðjan ehf - frá hugmynd að veruleika" - efnisyfirlit PDFSkoða/Opna