Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/20586
Offita er sívaxandi vandamál í heiminum í dag. Vegna þessa vandamáls hafa ýmsar tilgátur vaknað um orsakir offitu og þar á meðal hvort matarfíkn gæti verið einn áhrifaþáttur hennar. Í greiningarkerfinu DSM-V er spilafíkn eina skilgreinda hegðunarfíknin þrátt fyrir að það mætti hugsanlega fella fleiri hegðunarfíknir eins og matarfíkn, kynlífsfíkn og tölvuleikjafíkn þar inn. Hegðunartengdar og lífeðlisfræðilegar rannsóknir á matarfíkn renna stoðum undir að matarfíkn sé raunverulegt vandamál sem eigi margt sameiginlegt með vímuefnafíkn. Matarfíkn gæti því verið einn áhrifaþáttur síaukinnar offitu í heiminum. Ef svo er raunin er mikilvægt að grípa inn í sem fyrst og bæta meðferðaúrræði sem og finna nýjar meðferðir sem gagnast matarfíklum. Rannsóknir á matarfíkn eru þó takmarkaðar og fleiri rannsókna á þessu sviði þörf.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS-ritgerð-lokaskil.pdf | 439.08 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |