Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/20772
Reglur sem varða sönnun í einkamálum hljóta að teljast með mikilvægari reglum einkamálaréttarfars. Sönnunargögn skipta þar miklu máli, og miðað við dómaframkvæmd Hæstaréttar eru matsgerðir einna algengustu sýnilegu sönnunargögnin.
Í þessari ritgerð verður reynt að sýna fram á hvert sé sönnunargildi matsgerða dómkvaddra matsmanna í einkamálum, þ.e. hvert vægi þeirra sé. Stuttlega verður gert grein fyrir samspili matsgerða við önnur sönnunargögn sem unnt er að leggja fram í einkamálum.
Einnig verður skoðað hvaða afleiðingar það hafi fyrir sönnunargildi matsgerða ef einhverjir ágallar eru á þeim. Þá verður samhengið á milli undirmatsgerða og yfirmatsgerða sérstaklega skoðað. Að lokum verður því velt upp hvort sönnunargildi matsgerða kunni að vera breytilegt eftir réttarsviðum. Mun umfjöllunin byggjast öll á rannsókn á dómaframkvæmd Hæstaréttar, ásamt kenningum fræðimanna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Sönnunargildi matsgerða dómkvaddra matsmanna í einkamálum.pdf | 285.63 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |