Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/20977
Umræða um fíkniefni og vandamál þeim tengdum hefur verið áberandi á síðastliðnum árum á Íslandi. Mikil harka hefur færst í aðgerðir stjórnvalda gegn fíkniefnum til að stemma stigu við vandann. Þetta hefur leitt af sér hækkað hlutfall þeirra fanga sem að sitja inni fyrir fíkniefnabrot hér á landi. Ritgerð þessi felur í sér fræðilega umfjöllun um fíkniefni á Íslandi og eigindlega rannsókn í formi viðtala og vettvangsheimsókna. Leitast er við að skoða hvernig stærsta fangelsi á Íslandi, Fangelsið Litla-Hraun, tekst á við vandamál fíkniefna innan veggja sinna. Helstu niðurstöður sýna að fíkniefni eru vandi innan fangelsisins. Margt er ábótavant við þau úrræði sem í boði eru fyrir fanga sem eiga við fíkniefnavanda að stríða meðan á afplánun stendur, sem og eftirfylgni aftur út í samfélagið þegar henni er lokið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
LOKARITGERÐ_PDF.pdf | 529.55 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |