is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/210

Titill: 
  • Leikur er gulls ígildi : rannsókn á leik 9 - 12 ára barna á Eyjafjarðarsvæðinu
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Leikur er aðaliðja barna og er þeim nauðsynlegur til að ná alhliða þroska og þróa félagsleg tengsl. Leikur er einnig mikilvæg leið til að þróa hæfileika barnanna og kunnáttu þeirra um samfélagið auk þess sem hann hefur það hlutverk að þróa sköpunarhæfileika, greind og tilfinningar.
    Fræðimönnum ber saman um að leikur einkennist einkum af innri löngun og áhugahvöt og hafi fyrst og fremst þann tilgang að veita ánægju og vellíðan. Iðjuþjálfun byggir á þeirri trú að heilsa eflist með þátttöku í vinnu, leik eða tómstundaiðju og við eigin umsjá. Æskilegt er að vera líkamlega virkur í æsku og fram á fullorðinsár þar sem sýnt hefur verið fram á að líkamleg virkni á barnsaldri, til dæmis við leik, minnkar líkur á sjúkdómum og dregur úr hrörnun síðar meir á ævinni.
    Rannsóknin beinir sjónum sínum að leik 9 – 12 ára barna og er tilgangur hennar annars vegar að fá mynd af leik íslenskra barna og hins vegar að athuga hvort munur sé á leik barna í dreifbýli og þéttbýli. Til að afla upplýsinga um leik þeirra var Áhugalisti barna sem er íslensk þýðing matstækisins Pediatric Interest Profile lagt fyrir börnin. Notað var úrtak úr einum skóla í þéttbýli og einum skóla í dreifbýli. Skólarnir voru valdir með hentugleikaúrtaki og urðu Brekkuskóli á Akureyri og Hrafnagilsskóli í Eyjafjarðarsveit fyrir valinu. Úrtakið var 123 nemendur í 4. – 6. bekk og var einn bekkur valinn úr hverjum árgangi með handahófsúrtaki. Svarhlutfallið var 99,2%. Notuð var megindleg rannsóknaraðferð og var lýsandi tölfræði beitt við úrvinnslu gagna. Niðurstöður sýndu að vinsælustu leikirnir voru að vera með vinum, horfa á sjónvarp og fara í sund og lítill munur var á leikjum barna í þéttbýli og dreifbýli.
    Lykilhugtök: Dreifbýli, iðja, iðkun leikja, leikur, matstæki og þéttbýli.

Samþykkt: 
  • 1.1.2004
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/210


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
gull.pdf4.16 MBOpinnLeikur er gulls ígildi - heildPDFSkoða/Opna
gull-e.pdf84.15 kBOpinnLeikur er gulls ígildi - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
gull-h.pdf137.96 kBOpinnLeikur er gulls ígildi - heimildaskráPDFSkoða/Opna
gull-u.pdf115.01 kBOpinnLeikur er gulls ígildi - útdrátturPDFSkoða/Opna