Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21114
Í ritgerðinni er fjallað um þann tvískinnung sem finnst í grunngildum abrahamískra trúarbragða með hliðsjón af þeirri mynd sem kristin trú hefur tekið á sig í Vestur-Afríku. Þungamiðja gagnrýninnar er sótt í hugmyndir Karls Marx og Friedrichs Nietzsche um að trúarbrögðin eins og þau leggja sig eigi ekki rétt á sér. Stór þáttur greinargerðarinnar er þá athugun á þeim niðurbrjótandi áhrifum sem trúarbrögð hafa á samfélagið; fjallað er um auðmagnið sem afturhaldsafl og forræðishyggjuna sem birtingarmynd síðnýlendustefnunnar; sannleiksviðleitnina, samfélagsábyrgðina og vá ábyrgðarleysisins.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Stefanía Pálsdóttir.pdf | 511.64 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |