Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21251
Í þessari ritgerð verður fjallað um áhugaljósmyndun á Íslandi á árunum 1950-1970. Þar á meðal tvo þekktustu áhugaljósmyndaklúbba þess tíma, Litla ljósmyndaklúbbinn og Félag áhugaljósmyndara, og áhugaljósmyndarana Hjálmar R. Bárðarson og Rafn Hafnfjörð. Einnig verður fjallað um deilur áhugaljósmyndara og atvinnuljósmyndara á miðjum sjötta áratugnum. Félagsstarf og áherslur ljósmyndaklúbbanna verða skoðuð með tilliti til kenninga Pierre Bourdieu um aðgreiningu og flokkun einstaklingsins annars vegar og skilgreininga Robert Castel og Dominique Schnapper á áhugaljósmyndurum og mismunandi tegundir áhugaljósmyndaklúbba hins vegar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Bjarni_Bragason_BA-ritgerd.pdf | 2.68 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |