Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2129
Verkefni þetta fjallar um hlutverk stærðfræðistofa í grunnskólum. Fyrst eru tvær námskenningar skoðaðar, fjölgreindarkenningin og hugsmíðahyggja. Þá er rætt um kennslufræði stærðfræðinnar, hvernig nemendur læra stærðfræði og hvernig stærðfræði er og hefur verið kennd í grunnskólum. Fjallað er um markmið þess að hafa stærðfræðistofu í skólum, hlutverk kennara í stærðfræðistofu, skipulag stofunnar, skipulag vinnunnar í henni og hvernig fyrrnefndar námskenningar falla að vinnu í stærðfræðistofu. Í þeim kafla eru einnig hugmyndir íslenskra kennara um stærðfræðistofur sem að hafa reynslu af að vinna í slíkri stofu eða eru að byggja upp stærðfræðistofu. Í lokin er hugmyndalisti að verkefnum sem vinna má í stærðfræðistofu.
Lykilorð: Stærðfræðistofur, hlutbundin vinna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
staestofurlok.pdf | 308.15 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |