Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2130
Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed. prófs til grunnskólakennara á Menntavísindasviði Háskóla Íslands á haustönn 2008. Hún fjallar um þá staðreynd að nemendur eru mismunandi vel staddir námslega og þess vegna er þörf á fjölbreytileika í kennslu.
Rannsakaðar voru ýmsar heimildir sem varða mismunandi þarfir nemenda; skrif kennslufræðinga, kennara og fleiri. Út frá þessari vinnu er sett fram tillaga að kennslu fyrir nemendur á yngsta stigi grunnskóla sem kallast námsstöðvar.
Námsstöðvar eiga að virka sem hvati fyrir þá sem koma að skólastarfi til þess að skapa fjölbreytileika í námi og mæta einstaklingsþörfum nemenda. Þeim er ætlað að skapa fjölbreytilegt skólaumhverfi sem kemur til móts við og uppfyllir mismunandi námslegar þarfir ungra nemenda sem eru að hefja skólagöngu.
Lykilorð: Námsstöðvar, fjölbreytni í námi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaeintak.pdf | 1.79 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |