Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21339
Í þessari ritgerð verður saga kirkju í Vopnafirði rakin. Rannsóknartímabilið er frá 1700 til 2014. Ritgerðin skiptist í fimm megin kafla. Ýmsar breytingar hafa orðið á sóknaskipan í Vopnafirði á seinustu öldum. Helsta ástæða þeirra var fjárskortur og myndun þéttbýlis í Vopnafirði. Verður því byggðarþróun í Vopnafjarðarhéraði rakin í fyrsta kafla auk þess sem stiklað verður á stóru í sögu Vopnafjarðar sem verslunar- og kaupstaðar. Í öðrum kafla ritgerðarinnar verður saga prestakalla og sókna í héraðinu rakin og sagt frá því hvernig sóknaskipan hefur breyst á seinustu öldum. Í þriðja kafla verður saga kirkna í héraðinu könnuð, hvar þær stóðu, hvaða sókn tilheyrði þeim og hvaða eignir þær áttu. Í fjórða kafla verður það svo skoðað hverjir þjónuðu þeim og hvenær. Miðað við flest önnur sambærileg héruð hér á landi býr Vopnafjörður að þeirri sérstöðu að þar starfa fleiri en ein kirkjudeild. Í fimmta kafla verður því fjallað um Hvítasunnukirkjuna á Vopnafirði.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA-RITGERÐ_ÞURÍÐUR.pdf | 1.58 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |