is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21369

Titill: 
  • Nýsköpun og klasar í íslenskum sjávarútvegi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni þessarar ritgerðar er áhrif klasasamstarfs á nýsköpun í íslenskum sjávarútvegi. Tekin voru viðtöl við forsvarsmenn þriggja fyrirtækja innan Íslenska sjávarklasans; Codland, Norðursalt og Ocean Excellence. Notast var við hálfstaðlaðan spurningalista þar sem lögð var áhersla á að fá álit forsvarsmanna á hverjum lið fyrir sig til samanburðar.
    Jafnframt er farið yfir nokkur lykilatriði innan þess fræðasviðs er lýtur að klasastarfi og klasamyndun. Skoðuð eru tengslanet, myndun þeirra, virkjun og innbyrðis samspil tengsla. Farið er yfir helstu kenningar um klasa og eðli þeirra, einkum kenningar Michael E. Porters. Þá er farið inn á athyglisverðar kenningar Saras Sarasvathy um hvernig frumkvöðlar verða til fyrir aðra nálgun á virkjun gæða í umhverfi sínu en klassísk stjórnunarfræði bendir til.
    Niðurstöður viðtala eru settar fram í töflu og ræddar í framhaldi. Af þeim má ráða nokkuð afdráttarlaust að klasasamstarf styrki nýsköpun í íslenskum sjávarútvegi með því að búa fyrirtækjunum traustan vettvang til samstarfs.

  • Útdráttur er á ensku

    The topic of this thesis is the influence of clusters on innovation in the Icelandic fisheries industry. Semi-structured interviews were taken with leaders of three innovation companies within the Iceland Ocean Cluster; Codland, Norðursalt and Ocean Excellence. The interviews
    focused on getting comments on each part of the questionnaire for comparison. Furthermore a review is made on a number of the key theories relating to clusters and their formation. A look is taken at relationship networks, how they form, their utilisation and how
    they interact. Theories on clusters and their nature are touched upon with emphasis on Michael E. Porter‘s theories. Saras Sarasvathy‘s interesting theories on how entrepreneurs effectuate the means in their surroundings in a way different from the classic management theories would indicate are also studied. Results drawn from the interviews are presented in a table and discussed. From the results it clearly stands out that participating in a cluster enhances innovation in the Icelandic fisheries industry by creating a solid platform for the companies to cooperate.

Samþykkt: 
  • 11.5.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/21369


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Nýsköpun og klasar í íslenskum sjávarútvegi.pdf1.58 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna