is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21413

Titill: 
  • Samræðusiðfræði í leikskólum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Samræðusiðfræði er heimspeki- og málvísindaleg kenning um siðfræði sem Jürgen Habermas hefur tekið hvað mestan þátt í að búa til. Hún fjallar um hvernig er hægt að finna gildi siðaboða með siðferðilegri rökræðu sem allir sem eiga hlut að máli hafa
    aðgang að.
    Þessi ritgerð til BA-prófs í Heimspeki fjallar um hvernig hægt er að nýta kenningu Habermas um samræðusiðfræði í leikskólum. Skyggnst verður í meðal annars í Aðalnámsskrá leikskóla og athugað hvaða áherslur eru þar hvað varðar siðfræðikennslu. Umræða um siðfræðikennslu í leikskólum virðist þá vera af skornum skammti, sérstaklega hvað varðar opinbera stefnumótun, en þessi ritgerð er innlegg í þá umræðu.
    Skoðaðar verða tvær hugsanlegar leiðir til að nýta sér samræðusiðfræði í leikskólum. Önnur leiðin snýr að almennri samræðu kennara og barna og samræðusiðfræði nýtt sem leiðarljós fyrir kennara þegar þeir eiga í samskiptum við börn. Lögð verður áhersla á að minnka markmiðabundin samskipti en auka samskipti sem miða að sameiginlegum skilningi. Hin leiðin nýtir sér aðferð Matthew Lipman, heimspeki fyrir börn (P4C), sem er víða um heim notuð til að kenna börnum heimspekilega og rökræna hugsun. Sú aðferð snýst
    að miklu leyti um samræðu kennara og barna og færð verða rök fyrir því að nota megi aðferð Lipmans til að auðvelda notkun á samræðusiðfræði í leikskólum.

Samþykkt: 
  • 11.5.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/21413


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Samræðusiðfræði í leikskólum - Kolbjörn Ivan Matthíasson.pdf249.06 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna