is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21439

Titill: 
  • Skattlagning á ferðaþjónustu. Áhrif skattahækkana á komur ferðamanna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ferðaþjónusta er ört vaxandi atvinnugrein og fjölgar ferðamönnum mikið á milli ára. Þessi mikla aukning ferðamanna hefur leitt til aukins kostnaðar, til dæmis á innviðum ferðaþjónustunnar. Mörg lönd hafa tekið upp á því að innheimta sérstaka ferðaþjónustuskatta til að fjármagna þennan aukna kostnað.
    Í þessari ritgerð er skoðað hvaða áhrif skattahækkanir hafa á komur erlendra ferðamanna. Farið verður yfir algengustu form ferðaþjónustuskatta en ferðamenn þurfa að standa straum af ýmiss konar sköttum og gjöldum á ferðalagi sínu.
    Til að kanna árhrif skattahækkana á komur ferðamanna er skoðuð teygni eftirspurnar. Erlendar rannsóknir sýna að teygni eftirspurnar eftir helstu ferðaþjónustuafurðum er óteygin. Í ritgerðinni er farið yfir hvaða áhrif skattahækkanir á íslenska gistiþjónustu hafaá komur erlendra ferðamanna hingað til lands. Það kemur í ljós að ferðamönnum fækkar þegar skattar eru hækkaðir en sú fækkun er ekki mikil ef miðað er við þá fjölgun sem hefur verið á milli ára.

Samþykkt: 
  • 12.5.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/21439


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaritgerð Hagfræði.pdf908.36 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna