is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2160

Titill: 
  • Sjálfstæði fólks með þroskahömlun : rannsókn um sjálfsákvörðunarrétt
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmiðið þessarar rannsóknar var að skoða á hvern hátt unnið væri með sjálfs- ákvörðunarréttinn á heimilum fólks með þroskahömlun á höfuðborgarsvæðinu í íbúðarkjarna sem ég nefni Grundargötu Annars vegar með því að skoða málið frá sjónarhorni íbúa á þessum heimilum og hins vegar með sjónarhorni starfsmanna heimilanna, hvernig þeir styðja sína þjónustunotendur og hvernig þeim er skapaður grundvöllur til þess frá þjónustuveitendunum. Þá var einnig skoðað hvernig ferlið er frá þjónustuveitenda til þjónustuþega og hvernig möguleikarnir birtast, það er virðingin, valdeflingin og sjálfsákvörðunarréttur einstaklingsins. Í þessari rannsókn var unnið eftir aðferð eigindlegra rannsóknahefða. Upplýsinga var aflað með sex viðtölum sem tekin voru upp á segulband og síðar afrituð orðrétt. Viðtölin voru síðan greind og unnið að niðurstöðum. Lærdómar voru dregnir af niðurstöðunum og eru kynntir í samantekt. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til að unnið sé markvisst að því virða sjálfs- ákvörðunarrétt íbúanna í daglegu lífi. Íbúarnir upplifa að stundum sé sjálfsákvörðunar- réttur þeirra ekki virtur en þjónustuveitandi og starfsmenn telja sig vinna markvisst að því að virða sjálfsákvörðunarrétt íbúanna.

Athugasemdir: 
  • B.A. í þroskaþjálfafræði
Samþykkt: 
  • 3.4.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2160


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
thorhildur_svan_lokaritg.pdf527 kBOpinnHeildartexti PDFSkoða/Opna