is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Hólum > Ferðamáladeild > BA verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21643

Titill: 
  • Lúxusferðaþjónusta : meira en bara dýrar ferðir!
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er fjallað um lúxusferðaþjónustu á Íslandi með það að markmiði að skýra hvernig lúxusferðaþjónustu er háttað hér á landi og hverjar helstu birtingarmyndir hennar eru. Byrjað var á því að rýna í fræðilegt efni í þeim tilgangi að varpa ljósi á hvernig hugtakið lúxus er skilgreint og hvað það er sem einkennir viðhorf fólks til lúxus. Ritgerðin byggir á eigindlegum aðferðum og var rannsóknin framkvæmd í apríl 2015. Tekin voru viðtöl við þrjá aðila sem allir hafa mikla innsýn í lúxusferðaþjónustu hér á landi. Markmið viðtalanna var að draga fram hvernig íslenskir ferðaþjónustuaðilar skilgreina hvað í slíkri ferðaþjónustu felst. Niðurstaðan er sú að Ísland stendur vel að vígi hvað varðar framboð á lúxusferðaþjónustu en skortir fimm stjörnu hótel til þess að uppfylla kröfur lúxusferðamanna. Lúxusferðamenn sækja til Íslands til þess að upplifa fágæta og sérstaka náttúru.

  • Útdráttur er á ensku

    This paper focuses on luxury tourism in Iceland. Its aim is to explain how luxury tourism is conducted in Iceland and how it appears. In the beginning theoretical material is reviewed in order to shed a light on how the concept of luxury is defined and what it is that characterizes people‘s attitudes towards luxury. Qualitative methods are used and the research took place in April 2015. Three interviews were conducted with people who are involved with luxury tourism in Iceland. The goal of the interviews was to highlight how luxury tourism operators define what such tourism entails. The result is that Iceland has many possibilities when it comes to luxury tourism but lacks a five star hotel to fully meet the requirements of luxury tourists. Luxury tourists are seeking authenticity and a rare experience and Iceland has that to offer.

Samþykkt: 
  • 26.5.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/21643


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Auður Steinberg - BA ritgerð 2015.pdf600.22 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna