is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21665

Titill: 
  • Óvænt andlát: Þarfir aðstandenda
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Óvænt andlát er ófyrirsjáanlegur atburður sem gerir ekki boð á undan sér og hefur í för með sér afleiðingar sem hafa áhrif á aðstandendur og heilbrigðisstarfsmenn á bráðamóttöku. Að sinna aðstandendum hefur lengi verið þáttur af starfi hjúkrunarfræðinga. Undanfarin ár hefur þó aukin áhersla verið lögð á að gera þjónustuna markvissari með því að sameina þarfir sjúklinga og aðstandenda þeirra. Starfsfólk á bráðamóttökum þarf að horfast í augu við óvænt og ófyrirsjáanleg andlát ásamt því erfiða hlutverki að tilkynna aðstandendum andlátið. Kynni heilbrigðisstarfsfólks á bráðamóttöku og aðstandenda eru gjarnan stutt en geta verið náin. Þessi kynni geta átt stóran þátt í upplifun aðstandenda á andlátinu og haft áhrif á hvernig aðstandendur takast á við sorgina sem fylgir því að missa ástvin óvænt. Umhverfi bráðamóttöku einkennist af hraða og álagi sem krefst útsjónarsemi starfsfólks í því að veita aðstandendum þægilegt umhverfi í erfiðum aðstæðum. Hjúkrunarfræðingar taka oft á móti aðstandendum og upplifa þeir sig gjarnan óörugga við að tilkynna um andlát. Sýnt hefur verið fram á að klínískar leiðbeiningar hjálpi hjúkrunarfræðingum að tilkynna um óvænt andlát.
    Tilgangur þessa fræðilega yfirlits er að leita svara við því hver áhrif óvænts andláts á bráðamóttökum eru á aðstandendur og heilbrigðisstarfsfólk á bráðamóttöku.
    Niðurstöður benda til þess að óvænt andlát hefur áhrif á alla sem koma að andlátinu. Umhverfi bráðamóttökunnar er sérsniðið fyrir lífsbjargandi aðgerðir og erfitt getur verið fyrir starfsfólk bráðamóttöku að skipta úr lífsbjargandi aðgerðum yfir í að veita aðstandendum upplýsingar og sýna þeim samúð.
    Mikilvægt er fyrir heilbrigðisstarfsfólk á bráðamóttöku að vera meðvitað um áhrif óvænts andláts á aðstandendur og þekkja sorgarviðbrögð. Heilbrigðisstarfsfólk þarf að vera meðvitað um að það gegnir mikilvægu hlutverki í því hvernig aðstandendur upplifa andlátið og getur tilkynning um andlát haft áhrif á hvernig aðstandendum vegnar eftir að hafa misst ástvin óvænt.
    Lykilorð: Óvænt andlát, bráðamóttaka, sorg, þarfir aðstandenda, heilbrigðisstarfsfólk bráðamóttöku.

Samþykkt: 
  • 27.5.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/21665


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Óvænt andlát Þarfir aðstandenda.pdf344.41 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna