Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21674
Í grófum dráttum fjallar þessi ritgerð um fyrir fram ákveðnar heimafæðingar og vald.
Flestar íslenskar konur fæða börn á sjúkrahúsum, þó hefur færst í aukana undanfarin ár að hraustar konur velji að fæða börn í fyrirfram skipulögðum heimafæðingum. Við gerð þessarar ritgerðar voru tekin viðtöl við fimm konur sem valið höfðu að fæða börn heima.
Ritgerðinni er skipt upp í tvo hluta. Í fyrri hluta eru fæðingar skoðaðar bæði í sögulegu samhengi og í tengslum við hugmyndir Michel Foucault og Antonio Gramsci um vald og eftirlit, auk annarra. Auk þess verður skoðuð umfjöllun fjölmiðla sem gæti haft áhrif á ákvarðanatöku þeirra. Í seinni hluta verður horft til reynsluheims kvenna sem fætt hafa heima. Fjallað verður um aðkomu höfundar að fæðingu ásamt því að viðtölin við konurnar fimm verða túlkuð og sett í samhengi við fræðilega umfjöllu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ólöf Magnúsdóttir BA_27.5.pdf | 961.12 kB | Lokaður til...27.05.2025 | Heildartexti |