is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2169

Titill: 
  • Ástin á tímum ömmu og afa. Bréf og dagbækur aldamótamanns
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Bók þessi fjallar um ástir, lífsstarf og hugðarefni hjónanna Bjarna Jónassonar og
    Önnu Sigurjónsdóttur frá Blöndudalshólum í Blöndudal í Austur-Húnavatnssýslu.
    Bjarni var kennari, fræðimaður og sveitarhöfðingi í Bólstaðarhlíðarhreppi og Anna
    var húsmóðir á bújörð þeirra hjóna. Verður hér stiklað á stóru um lífshlaup Önnu og
    Bjarna en einkum dvalist við þriðja áratug tuttugustu aldarinnar – fyrstu kynni,
    tilhugalíf og fyrstu hjúskaparárin. Heimildir eru að mestu sóttar í persónuleg skrif
    Bjarna, dagbækur hans og sendibréf til Önnu. Hvort tveggja einkennist í bland af
    djúpri tilfinningatjáningu og einlægni, auk eindregins vilja til innri þroska í gegnum
    sjálfskoðun og markmiðasetningu. Að auki dregur Bjarni upp skýrar myndir af
    umhverfi sínu og helstu áhugaefnum. Þessi skrif Bjarna gefa þannig góða mynd af
    persónuleika hans og tilfinningalífi. Anna skrifaði Bjarna einnig bréf en þau hafa ekki
    varðveist og telja afkomendur þeirra hana trúlega hafa sjálfa komið þeim fyrir að
    honum gengnum. Við sjáum Önnu því mestmegnis í gegnum augu Bjarna og verður
    þáttur hennar hér óhjákvæmilega mun rýrari.
    Tilgangur bókarinnar er fyrst og fremst að skoða sögu Önnu og Bjarna – söguna af
    ástinni á milli þeirra, samdrætti og sameiginlegu lífshlaupi – og rýna í persónu og
    þroskasögu Bjarna eins og hún birtist í skrifum hans. En bréfin og dagbækurnar gefa
    einnig mynd af lífi alþýðufólks til sveita og íslensku samfélagi þess tíma sem nýst
    gætu til rannsókna af ýmsu tagi. Bjarni skrifaði til að mynda mikið um framfara- og
    félagsmál í sínu heimahéraði og hafa fræðimenn og áhugafólk sótt upplýsingar um
    þau efni í dagbækur hans og önnur skrif. Einnig geyma dagbækurnar færslur um
    fræðslumál, líf farkennara og aðbúnað til kennslu í farskólum sveitanna, landbúnað,
    samgöngur, velferðarmál og margt fleira sem snýr að sögu lands og þjóðar.

Samþykkt: 
  • 6.4.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2169


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Anna_Hinriksdottir_fixed.pdf3.94 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna