is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21737

Titill: 
  • Bragðbættar minningar. Matarferðamennska á Íslandi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Á síðustu árum hefur matarferðamennska rutt sér til rúms víða um heim og mikil vakning orðið um sælkera matargerðarlist og svæðisbundin matvæli í tengslum við ferðamennsku. Ísland er þar engin undantekning og nú hefur orðið umtalsverð aukning á framboði staðbundinna matvæla fyrir erlenda ferðamenn. Töluverð gróska er á starfsemi veitingahúsa í Reykjavík og fjölbreytni í matargerðarlist hefur aldrei verið meiri.
    Í ritgerðinni er leitast við að varpa ljósi á hversu umfangsmikil matarferðamennska er og hversu mikilvæg hún er fyrir upplifun ferðamanna og ferðaþjónustuna í heild sinni. Horft verður til þess hvernig matarferðaþjónusta birtist á Íslandi með áherslu á íslenska matargerð og Ný norræna matargerðalist.
    Rætt var við fjóra einstaklinga sem starfa í veitingageiranum miðsvæðis í Reykjavík og sérfræðing á sviði matartengdrar ferðaþjónustu í dreifbýli á Íslandi. Niðurstöður gefa til kynna að miklir möguleikar felist í íslenskri matargerð og matarhefð í ferðaþjónustu hér á landi, en margt bendir til þess að ólíkar skoðanir séu á meðal fólks um það hvaða aðferðum er æskilegt að beita í kynningu á íslenskum mat og matarhefðum fyrir erlenda ferðamenn.
    Lykilorð: Matarferðamennska, staðbundin matvæli, íslensk matargerð og matararfleifð, Ný norræn matargerð, upplifun ferðamanna, veitingahús

  • Útdráttur er á ensku

    In recent years there has been a certain revival of culinary tourism and interest on the subject has been on the rise world wide, especially regarding gourmet cooking, regional and local food. Iceland bears no exception and in latter years the supply of regional foodstuffs has grown significantly as related to tourism. The resturant business in Reykjavík is as diverse and prosperous as ever.
    This research paper is meant to shed ligh on the extensity and importance of culinary tourism, its meaning for travelers‘ experience and tourism in general, with emphasis on Icelandic cuisine, New Nordic Cuisine and the manifestations of culinary tourism in Iceland.
    Interviews were cunducted with four induviduals whom all work whithin the restaurant industry in Reykjavík along with one expert in the field of local food and tourism in Iceland. The interviews conclude that multible opportunities consist in regarding Icelandic cusine and cusine tourism, but that people within the industry differ in opinion as to how to go about marketing and introducing Icelandic food and customs in a global context.
    Keywords: Culinary tourism, local food, Icelandic cuisine and food heritage, New nordic cuisine, tourism experience, restaurants

Samþykkt: 
  • 29.5.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/21737


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Guðný Skúladóttir BS 2 skemma.pdf551.98 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna