is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/21953

Titill: 
  • Síld í Norðaustur-Atlantshafi : staða stofna og viðskipta með afurðir
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessu verkefni var staða mismunandi síldarstofna í Norðaustur-Atlantshafi greind. Könnuð var þróun hrygningarstofna frá árunum 1990-2014 ásamt spám fyrir næstu ár. Þróun á veiðum á árunum 2000-2014 var jafnframt skoðuð. Einnig var gert grein fyrir spám ICES á aflamarki næstu ár á norsk-íslenskri vorgotssíld, Norðursjávarsíld og íslenskri sumargotssíld.
    Viðskipti með síldarafurðir á árunum 2010-2014 voru greind. Þau lönd sem flytja út mest af heilli síld, ferskri og frosinni ásamt frosnum flökum og flöpsum voru skilgreind. Þá var útflutningur þeirra landa greindur m.t.t. magns, verðs og til hvaða landa þau voru að selja afurðirnar.
    Markmiðið með verkefninu var að leiða í ljós hvort tækifæri væru til staðar fyrir íslenska síldarframleiðendur í ljósi stöðu stofna og viðskipta.
    Helstu niðurstöður eru þær að spáð er samdrætti í stærstu síldarstofnum á næstu árum. Því má búast við minna aflamarki á næstu árum bæði í norsk-íslenskri vorgotssíld og Norðursjávarsíld. Staða íslensku sumargotssíldarinnar virðist vera í jafnvægi og gera spár ráð fyrir að aflamark muni aukast.
    Í ljósi stöðu stofnanna eru líklega að það opnist tækifæri fyrir Íslendinga til að selja frosin flök til Þýskalands og frosin samflök til Hvíta-Rússlands. Þó verður að tryggja að mikilvægum mörkuðum verði viðhaldið líkt og Pólland til að halda sterkri stöðu Íslendinga í flökum. Jafnframt er möguleiki á að hækka verð með endurbætingu á vinnslu og pakka frystiblokkir í loftþéttar og sjófylltar umbúðir líkt og Norðmenn gera. Jafnvel að seinka veiðum á árinu til að ná síldinni í sínu verðmætasta ástandi.

  • Útdráttur er á ensku

    The status of different herring stocks in the Northeast Atlantic will be observed in this thesis, along with the development of spawning stocks between 1990-2014 with the forecast for the next few years also being examined.
    Developments of catch figures regarding different herring stocks throughout 2000-2014 were examined as well. ICES’s long-term assessment of TAC for the coming year concerning Norwegian spring-spawning herring, North Sea herring and Icelandic summer spawning herring were also examined.
    Trade flow with herring was studied for the years 2010-2014. With influence on major export countries of whole herring, fresh and frozen along with frozen fillets and flaps. The exports of major herring producing countries and their businesses were investigated with research into quantity, price, and of the products they are selling.
    The aim of the project was to reveal whether opportunities existed for Icelandic herring producers in view of stocks and trade flow.
    The main findings are that the biggest herring stocks are decreasing in the coming years. Declining quotas can be expected in the recent future in both the Norwegian spring- spawning herring and North Sea herring. The Icelandic summer-spawning herring stock is still in good shape and predictions assume that quotas will rise in the coming years.

Samþykkt: 
  • 9.6.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/21953


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Síld í Norðaustur-Atlantshafi: Staða stofna og viðskipta með afurðir_Sigmar Örn Hilmarsson.pdf10.12 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna