is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22010

Titill: 
  • Fjölbreyttar kennsluaðferðir í náttúrufræðinámi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Verkefni þetta er lokaverkefni til B.Ed.-prófs við Kennaradeild Háskólans á Akureyri. Verkefnið er um mikilvægi þess að nota fjölbreyttar kennsluaðferðir við kennslu á náttúrufræði. Í verkefninu er lögð áhersla á að kanna kennsluaðferðir í náttúrufræði í grunnskólum og þá helst hjá elsta stiginu, þ.e. í 8. – 10. bekk.
    Markmið verkefnisins er tvíþætt. Annars vegar kynnir höfundur sér stöðu Íslands í náttúrufræðikennslu og hins vegar skoðar hann þær kennsluaðferðir sem náttúrufræðikennarar nota til að kenna þetta mikilvæga fag. Tilgangur verkefnisins er að kanna hvort kennarar noti fjölbreyttar kennsluaðferðir í náttúrufræðinámi, hvernig staða íslenskra barna sé í náttúrufræði og hvort það sé tenging þar á milli. Niðurstöður þessa verkefnis eru þær að höfundur telur að hægt sé að bæta náttúrufræðikennslu á Íslandi með því að nota fjölbreyttari kennsluaðferðir. Eftir vinnu á þessu verkefni hefur höfundur komist að því að rannsóknir sýna að kennsla í formi fyrirlestrar sé algengust, þrátt fyrir að ótal rannsóknir hafi sýnt fram á að aðrar kennsluaðferðir skili efninu betur til nemenda. Rannsóknir hafa einnig sýnt fram á að það sé mikilvægt að nota fjölbreyttar kennsluaðferðir í náttúrufræðinámi. Höfundur telur því að hægt sé að áætla að tenging sé á milli þess að kennarar noti ekki fjölbreyttar kennsluaðferðir og lakrar stöðu Íslendinga, til dæmis í PISA, í náttúrufræði.

  • Útdráttur er á ensku

    This final project is for B.Ed. degree within the Faculty of Education at the University of Akureyri. The project is about the importance of using a variety of teaching methods when teaching sciences. The focus will be on the teaching of science in schools, particularly in 8th to 10th grade.
    The aim of this project is two folded. First, to examine the status of science teaching in Iceland and to examine its teaching methods, which teachers use to teach this important subject. The purpose of this project is to investigate whether teachers use a variety of teaching of teaching methods in science education, how well Icelandic children do in science and if there is a connection between these two factors. The results of this project show that it is possible to improve teaching methods for natural science in Iceland by using more diverse methods in class.
    After working on this project, the author found that studies show that lecture is the most widely used teaching method for teaching science, despite the fact that countless of researches show that other teaching methods are more effective for the teaching. Researches have also shown that it is important to use a variety of teaching methods in science education. It´s the authors believe that there is a connection between teachers not using variety of teaching methods and the lack of good results, for example in PISA, in sciences.

Samþykkt: 
  • 11.6.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/22010


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Karen Nanna Þorkelsdóttir-B.Ed.-Ritgerð..pdf318.5 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna