is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Bifröst > Félagsvísindadeild > Meistarverkefni í félagsvísindadeild (MA) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22032

Titill: 
  • Rannsókn á framkvæmd og stjórnun kirkjutónlistar á grunni Tónlistarstefnu Þjóðkirkjunnar : auðlindir, virðisauki, virðiskeðja og SVÓT-greining.
  • Titill er á ensku A Study of the Executive and Managerial Aspects of Church Music Based on the Music Policy of The Evangelical Lutheran Church of Iceland : Resources, Value Added,Value Chain, SWOT Analysis.
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Hefur framkvæmd Tónlistarstefnu þjóðkirkjunnar leitt til þess að hún hafi sem mestan virðisauka af auðlindum sínum? Framkvæmd og stjórnun kirkjutónlistar eru hér greind með aðferðum stefnumótunarfræðanna á grundvelli Tónlistarstefnu þjóðkirkjunnar. Með því að velja aðferðir stefnumótunarfræðanna, verður til hugtakarammi og orðaforði til þess að fjalla um fyrirbærið kirkjutónlist sem geira innan Þjóðkirkjunnar, með áherslu á átök milli ólíkra hagsmunaaðila. Það getur nýst stjórnendum í kirkjutónlistargeiranum innan Þjóðkirkjunnar við hugsanlegar breytingar á Tónlistarstefnunni og við vinnu á grunni hennar með aðferðum stefnumiðaðrar stjórnunar. Með þessari rannsókn eru auðlindir kirkjutónlistarinnar greindar, eins og þær eru settar fram í Tónlistarstefnunni og starfsreglum eftir því sem við á. Virðiskeðja kirkjutónlistar er sett fram til að greina hvar og hvernig myndun virðisauka á sér stað. Niðurstöður rannsóknarinnar eru settar fram sem auðlindagreining annars vegar, en SVÓT greining á framkvæmd og stjórnun Tónlistarstefnunnar hins vegar. Rannsóknin er hugsuð sem innlegg í umræðu sem á sér stað innan Þjóðkirkjunnar og meðal hagsmunaaðila á sviði kirkjutónlistar. Niðurstöðurnar geta nýst við að greina mögulegar leiðir til úrbóta og sú aðferð og kortlagning sem hér er notuð við greiningu á kirkjutónlist hefur hagnýtt gildi, auk þess að vera gott yfirlit sem byggja má frekari rannsóknir á.

Samþykkt: 
  • 15.6.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/22032


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Kári Allansson_MA_lokaverk_Skemman.pdf2.03 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna

Athugsemd: Útprentun og/eða afritun er óheimil nema með skriflegu leyfi höfundar. Verkið er verndað af ákvæðum höfundarlaga.